LEIGA
V
ikuleiga innifelur vatn og rafmagn, en ekki leiga þegar heilir mánuðir eiga í hlut. Hægt er að fá leigð barnarúm á 10 evrur pr. viku. Heildarupphæð reiknings skal
gerð upp í evrum við afhendingu húsnæðisins.

UMGENGNI
G
anga skal vel um hið leigða húsnæði og halda því þokkalega hreinu á meðan dvöl stendur. Hægt er að kaupa þrif á tímabilinu. Telji leigutaki aðkomu ábótavant, er
hann tekur við húsnæðinu, skal hann tafarlaust gera viðvart svo hægt sé að gera úrbætur. Að öðrum kosti skoðast að leigutaki telji aðkomu fullnægjandi. Ekki má
viðhafa háreysti eftir kl. 11 á kvöldin. Kynna sér sundlaugarreglur viðkomandi húsfélags og hlýta þeim. Sé loftkæling notuð skulu dyr og gluggar vera lokuð, annars
kemur kælingin ekki að neinu gagni og neytir ómælds rafmagns. Er fólk beðið að varast að setja ísskáp á hæstu stillingu í miklum hitum. Kemur slíkt ekki að gagni
og styttir líftíma ísskápsins. Leigutakar eru beðnir að hafa í huga að húseigendur eru ábyrgir fyrir hegðun þeirra gagnvart nágrönnum og húsfélagi.

INTERNETTENGING
Þ
ar sem ADSL-tenging er til staðar, er húsið samt ekki leigt á hærra verði en ella. Því er viðhald eða önnur þjónusta ekki innifalin í leigunni.

ÞRIF
Þ
að er hluti af skilmálunum að leigutakar greiði fyrir brottfararþrif og þvott á líni í lok dvalar. Ekki hefur reynslan sýnt að fólki þyki þetta nein nauðung, þar sem flestir
eru hér í fríi og hafa lítinn áhuga á að standa í þrifum.
- Þrif á studioíbúð eru á 55 evrur og línþvottur 3 evrur á hvern dvalargest.
- Þrif á 1 svefnherbergis íbúð eru á 60 evrur og línþvottur 3 evrur á hvern dvalargest.
- Þrif á 2ja svefnherbergja íbúð eru á 65 evrur og línþvottur 3 evrur á hvern dvalargest.
- Þrif á 3ja svefnherbergja íbúð eru á 70 evrur og línþvottur 3 evrur á hvern dvalargest .
Þótt greitt sé fyrir brottfararþrif gildir sú regla að leigjendur skilji við öll eldunar- og mataráhöld hrein og tilbúin til notkunar fyrir næstu leigjendur. Á þetta einnig við um
útigrill, þar sem þau eru til staðar. Að gefnu tilefni er tekið fram að greiðsla fyrir línþvott gildir einungis um það lín sem leigjendur hafa ekki tök á að þvo og þurrka áður
en húsið er yfirgefið. Miðað er við eitt rúmfatasett og eitt handklæði á mann. Ástæða þessarar reglu er sú að þvottur og þurrkun alls línlagers viðkomandi húss lengir
mjög þann tíma sem tekur að gera húsið klárt fyrir næsta hóp. Verði mikill misbrestur á þessu, er áskilinn réttur til að halda eftir greiðslu (dregin frá endurgreiðslu
staðfestingar) vegna aukins kostnaðar við frágang og tafa sem af því orsakast.

STAÐFESTING PANTANA
T
il að staðfesta pöntun er óskað eftir staðfestingargreiðslu (35 þúsund kr.) inn á reikning í Landsbanka eigi síðar en 10 dögum eftir pöntun. Staðfestingin verður
síðan endurgreidd að dvöl lokinni sbr. það sem þegar hefur komið fram. Einnig ber að líta á þessa greiðslu sem tryggingu til að bæta hugsanleg tjón á híbýlum og
húsmunum af völdum leigutaka. Séu skemmdirnar meiri en sem greiðslunni nemur verður eðlilega gerð krafa um frekari bætur. Endurgreiðslan er síðan í formi
rafrænnar millifærslu inn á bankareikning þess leigutaka er greiddi staðfestinguna í upphafi. Staðfestingargreiðslan er hins vegar óafturkræf hætti leigutaki við dvöl
að hluta eða í heild. Einnig er gerður sá fyrirvari um ábyrgð á þessum fjármunum hvað varðar tap á þeim af bankareikningum af völdum hvers kyns hruns og/eða
aðgerða stjórnvalda.

VIÐ LOK DVALAR
H
úsnæðið sé rýmt eigi síðar en kl. 12 á hádegi brottfarardags. Samþykkja má annan brottfaratíma ef ekki þarf að gera húsið klárt samdægurs fyrir næsta leigutaka.
Þegar fólk fer úr húsi og annað kemur inn sama dag, mega nýir leigjendur reikna með að komast ekki inn fyrr en kl. 4 síðdegis. Það gæti hugsanlega dregist enn
frekar hafi viðskilnaður leigutakans á undan gefið tilefni til að verja meiri tíma í brottfararþrifin.

Vonandi hefur verið gerð grein fyrir öllu því sem lýtur að dvöl í þessum húsum, en sé hins vegar eitthvað enn óljóst skal ekki hika við að koma með fyrirspurnir.
Til baka á aðalsíðu
Hús til leigu í Torrevieja og Orihuela Costa
Hús til sölu á svæðinu
Verðskrá og pöntunarkerfi
Kort sem nær frá Torrevieja og yfir Orihuela Costa
Íslenskt - spænskt orðasafn
See this page in english
Almennir skilmálar varðandi leigu húsanna
Upplýsingar: Sveinn Arnar Nikulásson - sími +34 690 262 424 - fax +34 965 326 278 - orlofshus@hotmail.com
Ýmis þjónusta og aðstoð
ALICANTEBORG
Vefsíða Félags húseigenda á Spáni
Íslenskt símanúmer 499 1228.
Íslenskt símanúmer 499 1228.
Ýmsar gagnlegar upplýsingar og einskis nýtur fróðleikur