Kortið staðfestir rétt korthafa til heilbrigðisþjónustu sem verður nauðsynleg meðan á tímabundinni dvöl stendur í EES landi
Korthafi á rétt á allri heilbrigðisþjónustu (t.d. læknishjálp og lyfjum) sem telst nauðsynleg í því skyni að gera honum kleift að ljúka dvöl sinni á öruggan hátt. Hann
á ekki að þurfa að snúa aftur til heimalands síns (búsetulands) fyrr en áætlað var til þess að fá nauðsynlega meðferð.
Læknir í dvalarlandi metur heilsufar og nauðsynlega meðferð.
Þegar komið er á heilsugæslustöð, sjúkrahús eða apótek má búast við að einnig þurfi að framvísa vegabréfi eða öðrum persónuskilríkjum.
Kortið gildir eingöngu hjá þjónustuaðilum innan hins opinbera sjúkratryggingakerfis
Kortið gildir aðeins hjá læknum og öðrum heilbrigðisstarfsmönnum sem starfa innan hins opinbera sjúkratryggingakerfis í dvalarlandinu. Kortið gildir því ekki
þegar um er að ræða þjónustu sem veitt er á einkareknum sjúkrastofnunum. Leitið ávallt upplýsinga um hvort læknir eða sjúkrastofnun sem leitað er til starfi
innan opinbera sjúkratryggingakerfisins.
Aðstoð er veitt samkvæmt reglum dvalarlandsins
Þjónustan sem veitt er getur verið ólík frá einu landi til annars og mismunandi gjöld innheimt fyrir hana. Korthafi greiðir sama gjald fyrir þjón-ustuna og þeir sem
eru tryggðir í viðkomandi landi. Tryggingastofnun/sjúkrasamlag landsins sendir síðan reikning til Sjúkratrygginga Íslands sem sér um að greiða það sem á
vantar.
Í sumum löndum greiða örorkulífeyrisþegar og ellilífeyrisþegar lægra gjald en aðrir fyrir heilbrigðisþjónustu. Þeir gætu þurft að sýna fram á stöðu sína til þess að
njóta réttinda í samræmi við það, t.d. með framvísun örorkuskírteinis.
Kortið gildir ekki ef tilgangur farar er að fá meðferð erlendis
Kortið tekur ekki til þeirra tilvika þegar farið er til annars EES lands í þeim tilgangi að fá læknisaðstoð eða aðra heilbrigðisþjónustu.
Kortið fellur úr gildi ef korthafi telst ekki lengur sjúkratryggður á Íslandi til dæmis vegna brottflutnings eða vinnu erlendis
Kortið gildir yfirleitt í 2 ár svo fremi korthafi sé búsettur og sjúkratryggður á Íslandi. Ef hann flytur búsetu frá Íslandi fellur kortið almennt úr gildi. Sérreglur gilda um
námsmenn. Þeir sem starfa í öðru EES-ríki eiga almennt að vera tryggðir í því ríki þar sem þeir starfa og teljast þá ekki lengur sjúkratryggðir á Íslandi. Einstakling-
ar sem starfa tímabundið í öðru EES-ríki fyrir vinnuveitanda hér á landi geta þó sótt um áframhaldandi tryggingu hjá Sjúkratryggingum.
Óheimilt er að nota kort sem fallið er úr gildi að viðlagðri ábyrgð
Ef handhafi korts sem ekki telst lengur sjúkratryggður á Íslandi (t.d. vegna flutnings búsetu eða atvinnu erlendis) framvísar kortinu geta Sjúkratryggingar endur-
krafið hann um útlagðan kostnað ásamt vöxtum. Sama gildir um aðra misnotkun kortsins.
Korthafa ber að tilkynna um breytingar sem geta skipt máli um áframhaldandi gildi kortsins.
Blóðskilun og súrefnisþjónusta
Korthafi á rétt á blóðskilun og súrefnisþjónustu eftir þörfum í öðru EES-ríki en sérstakar reglur gilda um þessa þjónustu. Gera verður samkomulag um slíka þjón-
ustu fyrirfram (tímanlega) hjá viðkomandi þjónustuaðila.
Heimflutningur vegna alvarlegra veikinda eða andláts
Kortið veitir ekki rétt til heimflutnings til Íslands. Það tekur heldur ekki til kostnaðar sem ekki telst vera beinn sjúkrakostnaður. Sem dæmi má nefna kostnað
vegna breytinga á ferðaáætlun, lengri dvöl á hóteli eða vegna aðstoðar fylgdarmanns ef þörf er á aðstoð í heimferð.
Af hverju er kortið á íslensku?
Útlit kortsins er staðlað og er framhliðin eins í öllum EES-ríkjunum. Ríkin ráða hins vegar útliti hinnar hliðarinnar og hvert ríki notast við sitt opinbera tungumál.
Ef kortið týnist:
Ef kort týnist eða gleymist er unnt að fá sent sérstakt bráðabirgðavottorð frá Sjúkratryggingum.
Kortið gildir í eftirtöldum löndum:
Austurríki, Belgíu, Bretlandi, Danmörku, Eistlandi, Finnlandi, Frakklandi, Grikklandi, Hollandi, Írlandi, Ítalíu, Kýpur (gríska hlutanum), Lettlandi, Liechtenstein,
Litháen, Lúxemborg, Möltu, Noregi, Portúgal, Póllandi, Slóvakíu, Slóveníu, Spáni, Sviss, Svíþjóð, Tékklandi, Ungverjalandi og Þýskalandi.
Athugið!
Kannið hvers konar tryggingar þið hafið og hvort þær gilda á ferð erlendis. Nauðsynlegt getur verið að kaupa ferðatryggingu hjá tryggingafélögum. Slíkar trygg-
ingar greiða bætur fyrir fleira en almannatryggingar gera, t.d. kostnað vegna heimflutnings.







Almennar upplýsingar um evrópska sjúkratryggingakortið (tekið af vefsíðu Tryggingastofnunar ríkisins)
|
Upplýsingar: Sveinn Arnar Nikulásson - sími +34 690 262 424 - fax +34 965 326 278 - orlofshus@hotmail.com
|
Evrópska sjúkratryggingakortið gildir í öllum ríkjum EES og Sviss. Um kortið og notkun þess gilda EES-reglugerðir um almannatryggingar
og reglur sem settar hafa verið á grundvelli þeirra.
Ríkisborgarar Íslands og annarra EES-ríkja sem eru búsettir og sjúkratryggðir hér á landi eiga rétt á að fá evrópskt sjúkratryggingakort.
Kortið er notað ef korthafi veikist eða slasast í öðru EES-ríki.