Upplýsingar: Sveinn Arnar Nikulásson - sími +34 690 262 424 - fax +34 965 326 278 - orlofshus@hotmail.com
Umboðið hefur verið starfandi hér á svæðinu síðan 2002. Hér er gott úrval af húsum fyrirliggjandi til leigu. Ennfremur stendur til boða öll nauðsynleg aðstoð sem fólk
þarfnast til að verða húseigendur á Spáni; frá því að finna draumahúsið allt til enda kaupferlisins. Fyrir utan að útvega hús til kaups eða leigu þá stendur hér öll
almenn aðstoð til boða; keyrsla til og frá flugvelli,
útvegun bílaleigubíla, verktaka, aðstoð við túlkun (lögregla, sjúkrahús) og nánast allt sem fólk kann að þarfnast.

Að gefnu tilefni er fólki eindregið bent á að kynna sér skilmála varðandi leigu húsanna.
Orlofshús Costa Blanca - Sumarhús á Spáni - Torrevieja - Orihuela Costa
Hús til leigu í Torrevieja og Orihuela Costa
Verðskrá og pöntunarkerfi
Kort sem nær frá Torrevieja og yfir Orihuela Costa
Íslenskt - spænskt orðasafn
English version
Smellið hér til að kanna verð/bóka bílaleigubíl
2002 - 2012
Hús til sölu í Torrevieja og Orihuela Costa
ALICANTEBORG
Vefsíða Félags húseigenda á Spáni
ÖNNUR ÞJÓNUSTA Í BOÐI
Útvegun verktaka vegna hvers kyns verkefna og vandamála sem kunna að koma upp. Gerð eru tilboð í verk án nokkurra skuldbindinga.

Flugvallarakstur er fyrir hendi til og frá Alicante- og Murciaflugvelli. Verð fyrir akstur hvora leið er 50 evrur (Alicanteflugvöllur) og 30 evrur (Murciaflugvöllur).

Annar akstur er einnig í boði lengri og skemmri leiðir. Til að átta sig á kostnaði má reikna með 15 evrum á tímann auk 15 cent pr. ekinn kílómeter. Ef verkefnið varir í
fjóra tíma eða lengur reiknast 15 evrur á tímann einungis fyrstu tvo tímana og síðan 10 evrur á hvern tíma eftir það. Lágmarksgjald v/aksturs er 15 evrur og er það t.d.
ein ferð milli Torrevieja og Orihuela Costa.

Túlkun úr spænsku stendur einnig til boða, t.a.m. vegna ferðar á lögreglustöð, sjúkrahús eða heilsugæslu. Slíkt útkall er verðlagt á 30 evrur, sem dekkar fyrstu tvo
klukkutímana og síðan reiknast 10 evrur á tímann. Fyrir leigjendur á okkar vegum, sem og félagsmenn FHS, reiknast útkallið á 25 evrur og 10 evrur á tímann eftir það.

Hvað varðar seld þrif þá er vísað í almenna skilmála varðandi leigu húsanna, en þar má finna verðskrá.
Til baka á aðalsíðu
Almennir skilmálar varðandi leigu húsanna
Íslenskt símanúmer 499 1228.
Ýmsar gagnlegar upplýsingar og einskis nýtur fróðleikur